Ein búin að vera svakalega löt við að blogga
Reyni að bæta úr því
Danni og co. komin frá Tælandi öll 4
Já og gleðilegt ár allir saman
Annars uppáhalds dagar mínir fram undan namm namm Bolludagur, sprengidagur og svo öskudagur
Ætla að vera með BOLLUKAFFI á sunnudaginn kl. 3 fyrir þá sem eru á ferðinni verið velkomin
Svo styttist í London.....og stóta systir alveg að verða 50 ára
Búið að bóka sumarfrí á ættarmótverður örugglega frábært enda frábær fjölskylda á ferðinni
» 1 hafa sagt sína skoðun
Jólum er að verða búin að kaupa jólagjafir búin að baka eitthvað og svona sitt lítið af hverju
Ferðin til Danmerkur var rosalega fín.....fyrir utantafirhélt á tímabili að ég ætti heima í Leiffstöð við biðum í 16 tíma vegna veðurs og komum ekki til Ryslinge fyrr en kl. 7 að morgni eftir ýmsar hrakningar
En ferðin var frábær þrátt fyrir allt
Pétur kemur heim á morgun
Svo er bara Þorláksmessa jól jól jólá næsta leyti.
Hátíðarhöldin verða með hefðbundnu sniði Ætla að reyna að vera dugleg að blogga í jólafríinu
Gleðileg Jól allir saman
stóð undir væntingum bara slappað af og borðaður góður matur og drukkið heiti potturinn prófaður í skíta kuldamaður bara skilur ekki þetta fólk þarna norður frá
Það styttist í aðventu.... stefni á bakstur um helginabúa til aðventukrans, fara í jólaboð og jólahlaðborð og jólast bara út í eitt
Svo er bara að hafa sig í það að finna jólagjafir handa liðinu er búin að fá nokkrar hugmyndir
Svo eru það jólakortin og jóla jóla jóla
Síðasti kennsludagur á morgun eða þannig það er svona einn óopinber á mánudag svokallaðir særindadagar en vonast til þess að detta niður í 60% vinnu í des. og jafnvel eitthvað jólafrí. Á orðið svo mikið frí inni
Já fór á flotta tónleika með Þórönu á sunnudag með Vox fox
Svo styttist enn í Danmerkurferðina. hlakka til að hitta Pétur og strákana já og sjá kærustuna
» 0 hafa sagt sína skoðun
dásamlega letihelgi í sumarbústað er búin að vera annasöm vika nóg að gera í vinnu og óteljandi fundir....
Vonandi verður næsta vika rólegriannars styttist í að klínik lýkur og rólegri tími framundan
Svo er það sumarbústaðarferð með Ítalíuförum um næstu helgi það dásamlega við hana að hann Sigmundur er svo vanur að stjóra öllu í svona ferðum að maður sest bara í farþegasætið og slappar af sem sagt enn ein dásamleg letihelgi.
Þessi helgi fer í að hluta til að sitja þing Tannlæknafélagsins til þess að fræðast að sjálfsögðu og sjá hvort að einhverjir fyrirlesarar henti á næsta þing fyrir tanntækna
Pétur lætur vel af sér en er farin að fá pínu heimþrá ..... bara mánuður í að ég heimsæki hann
Tölvunámseiðin í höfn og orðin miklu fróðari um Exel og Power point sýningar
runninn upp og ekki fer á milli mála að það er kominn vetur.....
Matarklúbbur um síðustu helgi.....frekar slappur fyrir utan frábæran mat... liðið hálf sofandi. Held að við verðum að fara að byrja fyrr að deginum
Pétur er komin til Barcelona, er í skólaferðalagi alsæll að sjáfsögðu svo er prinsinn að verða 19 á laugardaginn. Fullt af afmælum á næstu dögum Eyþór og Elín með stuttu millibili og fleiri Til Hamingju allir saman
Fram undan sumarbústaðarferðir já ferðir 2 st. ekki veitir af að slaka á
Tölvunámskeiðin ganga bara vel miklu meiri vinna en ég átti von á en þetta hefst allt saman.
Búin að fá fyrsta sjúklingin í tannhreinsun, þó ég segi sjálf frá gekk það bara þokkalega. Held ótrauð áfram
Það stendur til að fara til London í feb. til þess að halda upp á afmæli frú Jónínu en sú heiðursfrú er að verða 50 ára 18 feb.
» 3 hafa sagt sína skoðun
ein helgin enn liðinn og var ég minnt á það í dag að það eru bara 2 mánuðir í Danmerkurferð mína, Heiðu og Ingólfs En ég hitti Ingólf og Þórönu í Kringlunni í dag. Bara svona á röltinu. Ingólfur á afmæli á morgun drengurinn að verða 17 búinn að ná bílprófi og alles. Til HAMINGJU með það elsku kallinn
Annars gengur bara allt sinn vana gang Pétur skemmtir sér vel í Ryslinge, María er alltaf að læra, Jóni líkar víst vel í Basel og við hjónakornin stundum okkar vinnu eins og gengur
Tölvunámskeiðin eru handan við hornið spennnandi svo er það tannvegsfræðin er að byrja að taka sjúklinga í stólinn.... þannig að þið sem eruð með tannstein og óhreinindi og hafið tíma endinlega látið mig vitaþetta kostar mjög lítið á deildinni
Svo er Sælkeraklúbbur síðasta vetradag hjá þeim heiðurshjónum Jóhönnu og Bjarna
» 2 hafa sagt sína skoðun
stundum allt of hratt....
Fullt af afmælum fram undan vinir og fjölskyldan..
Við hjónakornin erum að fara á hótel Rangá um helgina að gera okkur dagamun. Vonandi verður veður þokkalegt
Það gengur bara vel í tilraunanáminu.. nú þarf maður bara að finna sér fórnalömbþ.e. sjálfboðaliða í tannhreinsum helst eitthvað sem var er í Þetta er að verða spennandi
tölvunámskeiðin byrja á mánudag exel og power point.... svo að nóg verður að gera á næstunni
Hann Jói mágur 50 ára... til hamingju með það.
Í tilefni þess var okkur boðið í veislu í Svignaskarði, rosalega vel heppnuð helgi Takk fyrir okkur
Er að fara að bóka ferð til Danmörku ætla að leggja land undir fót í des ásamt Heiðu og Ingólfiætlunin er að heilsa upp á prinsinn hann Pétur Daníel og sjá afrakstur vetrarinskíkja í búiðir og fá okkur ekta danskan julefrukost
Annars bara búið að vera kleppur í vinnunni vonandi fer allt að falla í réttar skorður þar
Ætlunin að reyna að klára lóðina fyrir veturinn.... sjáum hvernig það gengur
eiginmaður minn á afmæli í dag 14 september. Til hamingju elskan
Það er búið að sletta í eina franska og eitthvað fleira. Geri ráð fyrir að einhverjir kíki inn í kvöld
Pétur Daníel lætur enn vel af sér í Danaveldi.
Annars bara vonandi góð helgi fram undan. Aldrei að vita nema að við getum gert eitthvað í garðinum allavegana komin tími til að reyna að klára
kensluvikan liðineins og við var að búast alltaf eitthvað sem hefði mátt vera búið að gera en fórst fyrir af einhverjum orsökum...:punkta það niður og læt það ekki koma fyrir á næsta ári...eða þannig
Ingi aftur farinn í veiðiferðhringdi í mig í morgun búin að landa líka þessum svaka fiski held að það hafi verið hvalur eða næstum þvi10 punda urriði. Þessi elska alltaf jafn fiskinn.
Pétur lætur ennþá vel af sér... tungumálið eitthvað að trufla hann en hann lætur það ekki á sig fá heldur heldur ótrauður áfram
Mín búin að skrá sig í tvo tölvukúrsa í fjarnámi og ætla svo að taka þátt í tilraunarverkefni tengt starfinu spennandi..
Fullt af afmælum í þessum mánuði og framundan... Ingi á föstudaginn kanski að maður skelli í köku
búin að vera róleg helgi me and my dog ein heimagott að hlaða batteríin fyrir næstu viku
á morgun fyrsti kensludagur á tannlæknadeildgott að fá líf aftur í húsið þ.e. stúdentana og alla aðra. Allt klárt eða eins og það getur orðið. Spennandi vetur framundan með væntanlegum breytingum á einhverjum fögum t.d. munngervalækningumkomin nýr yfirmaður..... líst bara vel á það.
Það var vel heppnað myndakvöld hjá okkur ítalíuförum um daginn. Matur, vín, og góður félagskapur. Jói eini tilbúin með myndir en til stendur að bæta úr því í Varmahlíð í nóvember.
Heiða Björk orðin 19 og Louisa lind 1 árs til haminigju báðar tvær og svo hellast afmælin yfir Þröstur orðin 45, Ingi að verða 46 svo hellingur þetta er tími afmæla til hamingju allir saman
Loksins lét prinsinn heyra í sér, hafði bara ekki haft tíma í að splæsa í símtal til mömmslu sinnar en aldeilis búin að bæta úr því. Hann er svakalega glaður með allt þarna og var núna um helgina í Köben að skoða hvernig landið leggurþeir vinirnir búnir að stofna íslandsklúbb í skólanum og eru þeir fjórir í honum og ein ísl. stelpa Ólöfgaman hve þeir eru glaðir
INGI er búin að vera að veiða þessa helgi kom heim með nokkra laxa og svo er næsta helgi líka áætluð fyrir veiði. María var heima hjá mér, hún var líka grasekkja þessa helgi.
Reyni að vera duglegri að blogga á næstunni en lofa samt engu
er bara byrjaður að vinnaætlaði að vera bara 5 tíma á dag en að sjálfsögðu er það bara brjálæðisleg bjartsýnien borgar sig ekki bara að vera bjartsýnn....
Við erum eins og gráir kettir hjá Þórönu og Þorsteini alltaf að tékka hvernig gengurþetta gengur svaka vel og þau rosalega dugleg
Pétur var með kveðjuveislu á sunnudagskvöld hann yfirgefur klakann á laugardaginn í 18 vikuren kemur vonandi heim aftur hver veit nema að það verði dönsk tengdadóttir meðbara að grínast.
Var að ljúka að lesa Dóttir gæfunnar eftir Isabel Allende. Ágætis afþreying, fjallar um nýlendubúa í Chile og berst sagan til Kaliforníu þar sem gullæðið er í hámarki. Virðingaleysi við kvennfólk en samt um konur sem láta ekki karlmenn valta yfir sig. Flottar lýsingar á mannfólki sem að seinna meir urðu bandaríkjamenn
Jói mágur búina að ákveða að halda upp á 50 afmælið
Framundan myndakvöld Ítalíufara, menningarnótt og fleira skemtinlegt
» 4 hafa sagt sína skoðun
er þá liðin.... við hjónin vorum bara heima. Fórum reyndar nokkrum sinnum út að borða, hittum nýjasta meðlim Inga fjölskyldu dóttir Þuríðar og Arnarsekkert smá mikil dúlla bara rétt rúmar 10 merkur svo píu ponsu lítl og alveg yndisleg Hittum líka Gullu og Snorra, Ingu og Árna allt utanbæjarfólkið sem nenti ekki í útilegu virtist vera í kaupstaðarferð
Þórana og Þorsteinn eru byrjuð á húsinu og gengur bara vel voru ekkert smá dugleg um helgina ef svona heldur áfram verða þau ekki lengi að koma þessu í íbúðarhæft horf
Ég er búin að prjóna vesti og byrjuð á lopapeysu á barn... hef ekki prjónað í meira en 20 ár og gengur bara nokkuð vel þó ég segi sjálf frá
Var að enda við að lesa bók eftir henning Mankell glæpasögu....og byrjuð á næstu.. Þetta er um rannsóknarlögreglumann Kurt Wallender. Þessi sem ég var að ljúka við er eins og sú sem ég las fyrir ári ágæt nema hvað höfundurinn gerir miðaldrakreppu Wallenders mjög góð skil svo að vægt sé tekið til orðaÆtla nú samt að leggja í þriðju bókina.
Nú fer að líða að sumarfríslokum sem betur fer er að verða alveg viltlaus á þessu hangsi, þ.e. lestri, prjóni og sjónvarpsglápi....
Eirný og Sigmundur komu í te/kaffi í gærkveldi við ætlum að fara að herja út afmælisveislu... 50 ára eða 100 út úr þeim hjónum á króknum...svo myndakvöld líklegast í lok sept.
Svo var hún Hrafnhildur svo yndisleg að sækja mig í dag og fara með mig í bíltúrgott að sjá eitthvað annað en þessa fjóra veggi, en það styttist í að ég losni við spelkuna og get þá farið minna ferða
Fáir hafa meldað sig á ættarmót.... en það er enn frestur til þess að láta vita
er komin heimog byrjuð á brauðstritinu, svo að maður sér hana nú ekki mikið og svo er náttúrulega Jón að vinna upp tíma með henni. En hún lét vel af Indlandsdvöl sinni. Þrátt fyrir magakveisur o.þ.h. segir hún að það sé vel á sig leggjandi.
Ég veit nú ekki með mig..... ég þoli ekki að vera á stöðum þar sem er svona mikil fátækt og mikið um betlaraég myndi gefa allt sem ég hefði og örugglega fötin utan af mér. Hefur næstum því gerst. (Kúba)
Sólin er farin að skína aftur ekki laust við að ég væri farin að sakna þess að geta lagst í sólbað eins og ég var búin að fá nóg af því um daginn.
Það fæddist nýr fjölskyldumeðlimur í Ingafjölskyldu stúlkubarn dóttir Þuríðar og Arnars systurdóttir Inga. Til Hamingju með það
Reyndar eignaðist Almut barnabarn um daginn 4 það var strákur sonur Silke og Hartmut Var búin að heyra nafnið en man það bara ekki nema bara seinni hlutan...Ulfrid
Verslunarmannahelgin fram undan, á von að við verðum bara heima, Ingi vill eflaust dunda í garðinum. Ég held bara áfram að lesa og prjóna og og og...Sem betur fer er ég svo heppin að vinkonur mínar hafa verið að bera í mig bækur og dvd til dægrastyttingar.TAkk TAkk